MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Pistlar

Út með útlitsdýrkun

Eftir Elín Ósk Arnarsdóttir·
elinosk
kaffid.is

Og inn með líkamsvirðingu. Ég geri mér fulla grein fyrir því að ég hef nú þegar skrifað einhverja pistla um þetta málefni. En það þarf að halda sér við og gera hlutina aftur. Alveg eins og maður þarf að mæta aftur og aftur í líkamsræktina. Ákveða hvað eigi að vera í kvöldmatinn. Skrúbba klósettið og skúra gólfið. Lífið er röð verkefna sem þarf að endurtaka í sífellu. Og eitt af þessum verkefnum er að sýna líkamanum virðingu.

Þrátt fyrir að líkamsvirðing sé stöðugt að verða betur þekkt hugtak meðal almennings þá er enn til staðar mikil útlitsdýrkun í samfélaginu okkar. Við erum mörg hver með ákveðin líkama í huga sem við teljum vera fallegan og heilbrigðan. Hér áður fyrr tengdist það því sem við sáum í sjónvarpinu eða tímaritum en í dag tengist það meira efni af samfélagsmiðlum. Við vitum flest að margt sem við sjáum á netinu er búið að breyta og bæta en við lendum örugglega flest í því að gleyma stundum að setja upp gleraugu gagnrýnnar hugsunar.

Þegar ég var á kynþroskaskeiðinu var ég með sterka hugmynd um það hvernig líkami minn átti að vera. Hann passaði hins vegar ekki í það form og þar af leiðandi greip ég til aðgerða til að breyta líkamanum. Það leið ekki á löngu þar til ég var greind með átröskun og við tóku yfir 13 ár af meðferðum til að reyna að breyta þessum hugsanamynstrum og hegðun. Það sem ég lærði sérstaklega af þessu veikinda- og bataferli var að erfðir hafa töluvert að segja um þyngd og líkamslögun. Líkamar okkar hafa sína náttúrulega þyngd, ákveðið þyngdarbil, og líkamslögun þar sem honum líður vel. Og hann leitar í það að komast þangað. Það er hægt að vinna gegn því með því að svelta sig í langan tíma eða borða yfir sig í marga mánuði eða mörg ár. En ef við tileinkum okkur heilbrigðar fæðuvenjur, hreyfum okkur reglulega og pössum upp á svefninn þá mun líkaminn á endanum finna sinn náttúrulega stað. Eftir síðustu innlögnina mína á sjúkrahúsinu reyndi ég að halda líkamanum nokkrum kílóum fyrir neðan sína náttúrulegu þyngd með því að stunda óeðlilega mikla hreyfingu. En svo þegar ég sleppti tökunum þá já, vissulega þyngdist ég um örfá kíló en það stoppaði líka þar. Af því að þetta var þyngdin þar sem líkama mínum líður vel. Ég var ekki sátt en ég áttaði mig hins vegar á að ég vil ekki vera í stríði við eigin líkama og einbeitti mér að því að vinna í hausnum í staðinn fyrir að reyna að hafa áhrif á þyngdina.

Líkamsvirðing leggur áherslu á það að við eigum að hugsa vel um líkama okkur, enda fáum við bara einn fyrir allt lífið. Sömuleiðis er mikið vægi lagt á fjölbreytileikann þar sem við höfum öll okkar líkama sem eru ólíkir, alveg eins og við erum með ólíkan augnlit eða skóstærð. Og það gerir lífið einfaldlega skemmtilegra. Útlitsdýrkunin selur okkur þá hugmynd að við þurfum að breyta líkama okkar til að líða betur með alls konar vörum og þjónustu en besta leiðin til að líka við líkamann er að breyta því hvernig við hugsum gagnvart honum. Líkami okkar á ekki að vera eitthvað skraut til sýnis fyrir aðra, þrátt fyrir fegurðarsamkeppnir sem líkamsvirðingarhreyfinin myndi aldrei samþykkja. Líkaminn er lifandi lífvera sem breytist með tíð og tíma. Það er eðlilegt að hann sé ekki alltaf eins og það eru forréttindi að fá að eldast. Við ættum því miklu frekar að hugsa um líkamann sem farartæki fyrir sálina til að lifa lífinu. Þessu flókna, krefjandi, spennandi og ævintýralega lífi.

Þegar þú deyrð, viltu að fólk muni hvaða fatastærð þú notaðir eða hver var þyngdin þín? Viltu ekki miklu frekar að fólk hugsi um útgeislun, brosmildi, umhyggjusemi og hlýja nærveru? Mundu að líkaminn er bara hylki, það ert þú sem manneskja sem skiptir öllu máli.

I don’t want you to fall in love with your body, I want you to fall in love with your life

Tengdar greinar

Uppfært: 19. október 2026