Varðskipið Freyja dregur flutningaskip til Akureyrar

Áhöfn varðskipsins Freyju vinnur nú að því að draga erlent flutningaskip til hafnar á Akureyri. Áhöfn flutningaskipsins hafði samband við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar eftir að stýrisbilun kom upp í skipinu um 210 sjómílur austnorðaustur af Langanesi.
Áhöfn Freyju var kölluð út og hélt varðskipið frá Siglufirði í gærmorgun. Freyja kom að flutningaskipinu um klukkan fjögur í nótt. Greint var frá þessu á heimasíðu Landhelgisgæslunnar í dag. Þar segir að vel hafi gengið að skjóta skotlínu yfir í flutningaskipið og skömmu síðar lauk áhöfn Freyju við að koma dráttartaug á milli skipanna.
Samkvæmt Landhelgisgæslunni hefur ferðin gengið vel og gert er ráð fyrir að Freyja komi með flutningaskipið til hafnar á Akureyri annað kvöld.
Tengdar greinar
Uppfært: 17. nóvember 2026










