Síðustu helgi fóru fram vinnustofur fyrir íbúa af erlendum uppruna vegna væntanlegra sveitarstjórnarkosninga sem Akureyrarbær, Eyjafjarðarsveit, Grýtubakkahreppur, Hörgársveit og Svalbarðsstrandarhreppur stóðu saman að.
Samkvæmt Ólöfu Rún Pétursdóttur, verkefnastjóra hjá Akureyrarbæ, gengu vinnustofurnar afar vel. „Við fengum jákvæð viðbrögð frá þátttakendum sem sögðust hafa fengið gagnlegar upplýsingar um kerfið og íslensk stjórnmál. Vinnustofurnar fóru fram á ensku og voru uppbyggilegar. Þær voru í umræðustíl frekar en hefðbundnu fyrirlestraformi,“ segir Ólöf á vef Akureyrarbæjar.
Einn þátttakandi orðaði upplifun sína þannig: „Þetta málþing var mjög uppbyggilegt. Ég kynntist betur íslenskum stjórnmálum, kerfinu, hvernig á að kjósa á Íslandi, þar á meðal skilyrðum og reglum, og mismunandi stjórnmálaflokkum. Ég kunni vel að meta fundinn og þakka leiðbeinandanum.“
Vinnustofurnar voru öllum opnar, óháð búsetutíma og ríkisborgararétti, og þátttaka var að kostnaðarlausu.


COMMENTS