Vel heppnuð hestanuddnámskeið hjá Létti

Fræðslunefnd Hestamannafélagsins Léttis stóð síðastliðna helgi, 31. október og 1. nóvember, fyrir grunn- og framhaldsnámskeiðum í hestanuddi með Auði Sigurðardóttur hjá Hestanuddi og heilsu.
Námskeiðin voru haldin í aðstöðu Léttis á Akureyri og sameinuðu bóklega fræðslu og verklega kennslu. Þátttakendur fengu innsýn í vöðva- og stoðkerfi hestsins, líkamsbeitingu og nuddaðferðir sem geta stuðlað að aukinni vellíðan og betri hreyfigetu hrossa.
Í verklega hlutanum unnu þátttakendur tveir saman með einn hest undir leiðsögn Auðar og fengu þannig tækifæri til að nýta fræðsluna í framkvæmd.
Námskeiðin voru haldin undir dyggri verkefnastjórn Rönnu Valtýs og Jón Þór, kokkur fræðslunefndarinnar, sá um veitingar. Á laugardeginum var boðið upp á mexíkósúpu og á sunnudeginum sveitaskyr með rjómablandi og ávöxtum.
Námskeiðin tókust afar vel og voru skemmtileg viðbót við fjölbreytt fræðslustarf Léttis. Fræðslunefnd félagsins þakkar Auði fyrir fróðlega og vandaða kennslu, öllum sem komu að undirbúningi og framkvæmd og síðast en ekki síst þátttakendum fyrir ánægjulega og lærdómsríka helgi.
Með námskeiðum sem þessum vill fræðslunefnd Léttis efla þekkingu hestafólks og stuðla að aukinni vitund um heilsu, umhirðu og velferð íslenska hestsins.

Tengdar greinar
Uppfært: 10. nóvember 2026










