MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fréttir

VG hafnar sjókvíaeldi og vindorkuverinu Hnotasteini

Eftir Kaffið ritstjórn·
pexels-scott-m-graves-2056897-39704722
kaffid.is

Kjördæmaþing Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs í Norðausturkjördæmi fór fram sunnudaginn 18.október 2026. Tvær ályktanir voru samþykktar á þinginu. Í fyrsta lagi lýsti þingið yfir andstöðu við uppbyggingu vindorkuversins Hnotasteinn sem fyrirhugað er á Hólaheiði á Melrakkasléttu og í öðru lagi krefst það þess að öll áform um sjókvíaeldi í Seyðisfirði verði stöðvuð.

Hér fyrir neðan má lesa ályktanir í heild sinni.

Tvær ályktanir voru samþykktar á þinginu og eru eftirfarandi: 1. Kjördæmisþing Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs í Norðausturkjördæmi, 18. október 2026, lýsir yfir andstöðu við uppbyggingu vindorkuversins Hnotasteinn sem fyrirhugað er á Hólaheiði á Melrakkasléttu. Þingið vill minna á mikilvægi þess að virða rammaáætlun. Rammaáætlun er eitt mikilvægasta stjórntæki þjóðarinnar til að tryggja vandaða, gagnsæja og heildstæða ákvörðunartöku um nýtingu lands og náttúru. Biðflokkurinn er mikilvægur fyrir þá kosti sem enn skortir nægjanleg gögn eða þar sem umhverfisáhrif, samfélagsleg áhrif og langtímahagsmunir hafa ekki verið metnir til fulls. Að þrýsta einstökum kostum úr biðflokki yfir í nýtingarflokk áður en slík vinna liggur fyrir grefur undan trúverðugleika ferlisins og þeirri samfélagssátt sem rammaáætlun byggir á. Ekki má láta pólitískan þrýsting eða skammtímahagsmuni ráða för. Vindorkuver á Hólaheiði er stórt inngrip í viðkvæmt og víðfeðmt landsvæði. Um er að ræða breytingu sem hefur áhrif á landslag, lífríki, upplifun og sjálfsmynd svæðisins til framtíðar. Slík ákvörðun verður ekki réttlætt eingöngu með blekkjandi tilvísunum í aflgetu, flutningskerfi eða arðsemi fyrir orkufyrirtæki. Byggðaþróun, raforkuöryggi og atvinnuuppbygging eru mikilvæg markmið og þau verða að nást í sátt við náttúruvernd, varfærni og lýðræðislega ferla.

2. Kjördæmisþing Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs í Norðausturkjördæmi, 18. október 2026, krefst þess að öll áform um sjókvíaeldi í Seyðisfirði verði stöðvuð. Fulltrúar VG í sveitarstjórn Múlaþings og VÁ, félag um vernd fjarðar, hafa verið afdráttarlaus í sinni afstöðu og við lýsum yfir fullum stuðningi við þeirra baráttu sem og annarra sem lagt hafa málstaðnum lið. Mótmæli undanfarið sýna mikinn samstöðumátt og það er nauðsynlegt að stjórnvöld hlusti á heimafólk. Það má ekki fórna viðkvæmu lífríki fyrir mengandi stóriðju, það er ólíðandi og ólýðræðislegt að valtað sé yfir vilja heimafólks.

Á fundinum var kjörin ný stjórn kjördæmaráðs:

Formaður var kjörinn Ásrún Ýr Gestsdóttir, Hrísey.

Ritari: Guðlaug Björgvinsdóttir, Reyðarfirði

Gjaldkeri: Sóley Björk Stefánsdóttir, Akureyri

Aðrir í stjórn: Aldey Unnar Traustadóttir, Húsavík

Jana Salóme Ingibjargar Jósepsdóttir, Akureyri

Klara Mist Pálsdóttir, Ólafsfirði

Sigtryggur Ellertsson, Akureyri.

Tengdar greinar

Uppfært: 18. október 2026