MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fréttir

Vinna við breytingar á umferðarljósum hefst í dag

Eftir Hákon Orri Gunnarsson·
umferðarljós hjarta
kaffid.is

Í dag hefst vinna við breytingar á nokkrum umferðarljósum á Akureyri. Umfangsmestu breytingarnar verða á gatnamótum Glerárgötu og Strandgötu, Þingvallastrætis og Dalsbrautar, við gangbraut yfir Dalsbraut gegnt Lundarskóla og við Hrísalund. Auk þess verða gerðar minni háttar breytingar og stillingar á öðrum umferðarljósum í bænum. Þetta kemur fram á vef Akureyrarbæjar þar sem vegfarendur eru beðnir um að sýna aðgát á meðan á framkvæmdum stendur.

Gangbrautarljós á Dalsbraut við Lundarskóla munu því framvegis vera hnappastýrð, þar sem vegfarendur þurfa að ýta á hnapp til að fá grænt ljós. Skólinn mun upplýsa nemendur um breytinguna.

Vegna framkvæmdanna má búast við að umferðarljós verði óvirk í nokkrar klukkustundir á mótum Glerárgötu/Strandgötu annars vegar og Þingvallastrætis/Dalsbrautar hins vegar.

Tengdar greinar

Uppfært: 16. nóvember 2026