MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fréttir

VMA handhafi Íslensku menntaverðlaunanna

Eftir Hákon Orri Gunnarsson·
a523b81c-a873-40a2-a4ae-af62f1981632
Ljósmynd af vef VMA – Forseti Íslands, Halla Tómasdóttir, með Ástu F. Flosadóttur aðstoðarskólameistara VMA og Hauki Eiríkssyni brautarstjóra rafiðnbrautar VMA.· kaffid.is

Verkmenntaskólinn á Akureyri (rafdeild) er handhafi Íslensku menntaverðlaunanna í flokki iðn- og verkmennta fyrir sjálfbæra kennslustofu sem rafdeild skólans setti upp fyrr á þessu ári. Í tilkynningu frá VMA segir að til þess að afla rafmagns fyrir sjálfbæru kennslustofuna, sem er ein af kennslustofum rafdeildar á B-gangi skólans, var komið fyrir sólarsellum á þaki skólans og einnig lítilli vindrafstöð, í samstarfi við og með stuðningi frá Umhverfis- og orkustofnun.

Í umsögn Íslensku menntaverðlaunanna um sjálfbæru kennslustofuna í VMA segir:

VMA á skilið viðurkenningu fyrir framúrskarandi framlag til iðn- og verkmenntunar vegna frumkvöðlastarfs síns á sviði sjálfbærni, nýsköpunar og hagnýtrar kennslu. Með þróun sjálfbærrar kennslustofu, þar sem sólarsellur og vindorka sjá nemendum fyrir rafmagni til daglegra nota, hefur skólinn skapað lifandi lærdómssamfélag þar sem nemendur fá tækifæri til að tengja nám sitt við raunveruleg verkefni og samfélagsáskoranir samtímans. Verkefnið sýnir skýra framtíðarsýn um hvernig iðn- og verkmenntun getur verið leiðandi afl í loftslags- og orkumálum. Nemendur taka virkan þátt í þróun, rekstri og skilningi á tækninni og öðlast þar með dýrmæta verklega reynslu, ábyrgðartilfinningu og hæfni sem nýtist þeim í framtíðarstörfum. Verkefnið stuðlar jafnframt að jákvæðum skólabrag, auknu samstarfi við atvinnulíf og sterkari tengingu milli menntunar og samfélags. Framlag VMA er bæði frumlegt og áhrifamikið og hefur skólinn með þessu sýnt hvernig skapandi hugsun, fagmennska og samstarf geta leitt til raunverulegra menntaumbóta og orðið öðrum skólum fyrirmynd.

Sjá nánar á vef VMA.

Tengdar greinar

Uppfært: 11. nóvember 2026