MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fréttir

Yfir 100 erlendir starfsmenn væntanlegir til Húsavíkur í sláturtíð

Eftir María Hjelm·
eyJidWNrZXQiOiAicnV2LXByb2QtcnV2aXMtcHVibGljIiwgImtleSI6ICJtZWRpYS9wdWJsaWMvb3JpZ2luYWxfaW1hZ2VzL2ZyXzIwMjIwOTE5XzE4NTI5OC5qcGciLCAiZWRpdHMiOiB7InRvRm9ybWF0IjogIndlYnAiLCAid2VicCI6IHsicXVhbGl0eSI6IDYwfSwgI
Mynd: RÚV – Sölvi Andrason· kaffid.is

Kjarnafæði Norðlenska á von á ríflega 100 erlendum farandverkamönnum til vinnu á Húsavík þegar sláturtíð hefst eftir nokkrar vikur. Þetta kemur fram á vef RÚV í dag.

Sláturtíðinni fylgir mikið umfang og fyrirtækið sér um að útvega starfsfólkinu húsnæði meðan á sláturtíðinni stendur. Undirbúningur hefur staðið yfir síðan í febrúar. Stærsti hluti verkamannanna kemur frá Mið-Evrópu og Bretlandi, en Bretar voru í meirihluta áður en þeir gengu úr Evrópusambandinu.

„Það eru bæði sérhæfð störf og almenn störf og við erum heppin með það að fólk kemur ár eftir ár bæði í þessi sérhæfðu og almennu störf,“ segir Jóna Jónsdóttir, mannauðsstjóri Kjarnafæðis Norðlenska, en að hennar mati væri ekki hægt að slátra án þessa erlenda vinnuafls.

Tengdar greinar

Uppfært: 6. september 2026