Yfir 30 fyrirtæki taka þátt í jólarölti FKA norðurlands

Yfir 30 fyrirtæki taka þátt í jólarölti Félags kvenna í atvinnulífinu sem fer fram á Akureyri 18. nóvember. Röltið hefst á Glerártorgi þaðan sem hópurinn röltir í átt að miðbænum, heimsækir verslanir og kynnist starfsemi fyrirtækja á svæðinu.
Stjórnarkonur FKA standa að viðburðinum. Í undirbúningsnefnd eru félagskonurnar Hanna Dögg Maronsdóttir og Jóhanna Hildur Ágústsdóttir. Tilgangurinn er að skapa skemmtilega stund þar sem konur geta eflt tengsl sín á milli og fyrirtæki fengið tækifæri til að kynna starfsemi sína beint fyrir félagskonum.
Margar þeirra eru í eigin rekstri eða gegna stjórnendastörfum í fyrirtækjum hér á Norðurlandi.
Rúmlega 30 fyrirtæki koma að jólaröltinu með einum eða öðrum hætti. Margar verslanir verða með tilboð og kynningar á sinni starfsemi. Gert er ráð fyrir að um 50 konur taki þátt, en röltið sjálft er orðið fullt fyrir fleiri fyrirtækjaheimsóknir. Að því loknu verður jólastund þar sem félagskonur fá kynningar, gjafir, góðar veitingar og uppistand frá félagskonunni Snæfríði Ingadóttur.
Jólaröltið var haldið í fyrsta sinn á Norðurlandi í fyrra, þegar 19 konur tóku þátt. Þá voru félagskonur um 30 talsins, en nú eru þær tæplega 100. Sambærilegt jólarölt hefur verið haldið í fleiri skipti á höfuðborgarsvæðinu og fannst okkur tilvalið að leyfa fyrirtækjum hér á svæðinu að njóta.
„Það sem ég er spenntust yfir er stemningin sem myndast í krafti svona flottra kvenna — það er alveg töfrum líkast,“ segir Jóhanna Hildur, formaður FKA sem stóð að viðburðinu í fyrra. ,,Við vonum svo auðvitað að veðurguðirnir verði góðir við okkur, þó svo að það sé algjört aukaatriði á svona viðburði.”
Félag kvenna í atvinnulífinu er lifandi hreyfiafl kvenna, á norðurlandi hefur deildin vaxið gríðarlega síðastliðin misseri. Áhugasamar konur um félagið kynnt sér málið á heimasíðu FKA, fka.is.
Tengdar greinar
Uppfært: 10. nóvember 2026










