Yfir 600 keppendur skráðir á PollamótiðMynd/Þór

Yfir 600 keppendur skráðir á Pollamótið

Nú þegar rétt rúmar þrjár vikur eru í að flautað verði til leiks á Pollamóti Samskipa eru yfir 600 keppendur skráðir til leiks. Það stefnir því í hörku mót en lokað verður fyrir skráningar mánudaginn 30. júní. Þetta kemur fram á vef Þórs.

Fótboltinn verður með hefðbundnu sniði, spilað um það bil frá kl 9-18 á föstudag og 9-17 á laugardag. Úrslitaleikir í deildum verða spilaðir á bilinu kl. 14-17 á laugardag. Leikið er í fjórum aldursflokkum karla og þremur aldursflokkum kvenna. Vakin er athygli á því að búið er gera breytingar á aldursflokkum.

Breytingar á aldursflokkareglum
Karlar
Polladeildin: Karlar 28+. Þeir sem verða 28 ára á árinu teljast gjaldgengir.
Jarladeildin: Karlar 38+. Þeir sem verða 38 ára á árinu teljast gjaldgengir
Lávarðadeildin: Karlar 48+. Þeir sem verða 48 ára á árinu teljast gjaldgengir
Öðlingadeildin: Karlar 56+. Þeir sem verða 56 ára á árinu teljast gjaldgengir.

Konur
Skvísudeildin: Konur 20+. Þær sem verða tvítugar á árinu teljast gjaldgengar.
Dömudeildin: Konur 28+. Þær sem verða 28 ára á árinu teljast gjaldgengar.
Ljónynjudeildin: Konur 35+. Þær sem verða 35 ára á árinu teljast gjaldgengar.

Í tilkynningunni segir einnig:

Dagskrá helgarinnar verður ekki af lakari gerðinni en á föstudagskvöldinu mun Ingó sjá um að halda uppi stemningunni við Hamar. Á laugardagskvöldið verður svo risa ball í Boganum þar sem meðal annars Skítamórall og Herbert Guðmundsson stíga á stokk.

Skráningar fara fram á vef mótsins og er sem fyrr segir opin til 30.júní. Fyrir þá sem vilja senda inn fyrirspurnir er bent á netfang mótsins: pollamot@thorsport.is.

COMMENTS