Byko og Hollvinir SAk taka höndum saman

Byko og Hollvinir SAk taka höndum saman

Á dögunum fengu starfsmenn Sjúkrahússins á Akureyri ansi skemmtilega gjöf frá Hollvinasamtökum SAk.

Þann 6. febrúar síðastliðin kom Jóhannes Gunnar Bjarnason  formaður Hollvinasamtaka SAk færandi hendi með tvær glæsilegar kaffivélar og afhenti starfsfólki bráðamóttöku og rannsóknardeild.

Kaffikönnurnar voru keyptar með rausnarlegum styrk frá Byko. Á heimasíðu sjúkrahússins er sagt að þó ekki sé um eiginleg lækningatæki að ræða þá skiptir líka miklu máli að aðbúnaður starfsmanna sé sem bestur og óhætt að segja að þessar gjafir hafi verið kærkomnar.

Sambíó

UMMÆLI