Fimm Akureyringar í landsliðshópnum

handbolti

Fimm Akureyringar í 28 manna landsliðshóp.

Geir Sveinsson, landsliðsþjálfari Íslands í handbolta, valdi í dag 28 leikmenn sem koma til greina í landsliðshópinn á HM í Frakklandi sem fram fer í næsta mánuði.

Fimm Akureyringar eru í þessum 28 manna hópi en það eru þeir Sveinbjörn Pétursson, Arnór Þór Gunnarsson, Guðmundur Hólmar Helgason, Arnór Atlason og Geir Guðmundsson.

Úr þessum 28 manna hópi verður svo valinn 16 manna hópur sem fer á HM í Frakklandi. Íslenska liðið mun æfa saman milli jóla og nýárs og spilar þrjá vináttulandsleiki í Danmörku áður en það heldur til Frakklands.

Þátttaka Íslands á HM hefst svo þann 12.janúar næstkomandi þegar liðið mætir Spánverjum.

Hópurinn í heild sinni

Markmenn:
Aron Rafn Eðvarðsson, SG BBM Bietigheim
Björgvin Páll Gústavsson, Die Bergische Handball Club
Grétar Ari Guðjónsson, Haukar
Hreiðar Levý Guðmundsson, Halden Topphåndball
Sveinbjörn Pétursson, Stjarnan

Línumenn:
Arnar Freyr Arnarsson, IFK Kristianstad
Bjarki Már Gunnarsson, EHV Aue
Kári Kristján Kristjánsson, ÍBV
Vignir Svavarsson, HC Midtjylland ApS

Vinstri hornamenn:
Bjarki Már Elísson, Fuche Berlin
Elvar Örn Jónsson, Selfoss
Guðjón Valur Sigurðsson, Rhein Neckar Löwen
Stefán Rafn Sigurmannsson, Aalborg Håndbold

Hægri hornamenn:
Arnór Þór Gunnarsson, Die Bergische Handball Club
Guðmundur Árni Ólafsson, Haukar
Óðinn Þór Ríkharðsson, FH

Vinstri skytttur:
Aron Pálmarsson, MKB Veszprém KC
Guðmundur Hólmar Helgason, Cesson-Rennes
Ólafur Andrés Guðmundsson, IFK Kristianstad
Sigurbergur Sveinsson, ÍBV
Tandri Konráðsson, Skjern Håndbold

Leikstjórnendur:
Arnór Atlason, Aalborg Håndbold
Gunnar Steinn Jónsson, IFK Kristianstad
Janus Daði Smárason, Haukar

Hægri skyttur:
Ásgeir Örn Hallgrímsson, Nimes
Geir Guðmundsson, Cesson-Rennes
Ómar Ingi Magnússon, Aarhus Håndbold
Rúnar Kárason, TSV Hannover/Burgdorf

Sambíó

UMMÆLI