Skemmdarvargur eða skemmdarvargar spreyjuðu á veggi fjögurra kirkna á Akureyri í nótt. Akureyrarkirkju, Glerárkirkju, Hvítasunnukirkjunnar og Kaþólsku kirkjunnar. Úðabrúsi fannst við Akureyrarkirkju. Ekki er vitað hver eða hverjir voru að verki en það er líklegt að viðkomandi hafi verið á bifreið þar sem töluverð vegalengd er á milli kirknanna. Hér að neðan má sjá myndir af Akureyrarkirkju og Hvítasunnukirkjunni. Þrjú atvikana hafa verið tilkynnt til lögreglunnar á Akureyri.
Þeir sem hafa upplýsingar um málið eru beðnir um að hafa samband við lögregluna á Akureyri í síma 444-2800.
![Veggir Hvítasunnukirkjunnar](http://www.kaffid.is/wp-content/uploads/2017/01/hvittaaa-650x488.jpg)
Veggir Hvítasunnukirkjunnar
![Veggir Hvítasunnukirkjunnar](http://www.kaffid.is/wp-content/uploads/2017/01/hvíta-650x488.jpg)
Veggir Hvítasunnukirkjunnar
![Veggir Hvítasunnukirkjunnar](http://www.kaffid.is/wp-content/uploads/2017/01/www-650x488.jpg)
Veggir Hvítasunnukirkjunnar
![Akureyrarkirkja](http://www.kaffid.is/wp-content/uploads/2017/01/akkirkjaaa-650x365.jpg)
Akureyrarkirkja
UMMÆLI