Samstarfi Þórs og KA í kvennaboltanum slitið

Samstarfi Þórs og KA í kvennaboltanum slitið

Aðalstjórn Knattspyrnufélags Akureyrar samþykkti á fundi sínum í gær að endurnýja ekki samninga milli KA og Þórs um sameiginlega meistaraflokka kvenna í handknattleik og knattspyrnu sem verið hafa í gildi frá árinu 2001.

Aðalstjórn KA telur að þessi ákvörðun muni efla og styrkja stöðu knattpyrnu kvenna á Akureyri og gefa fleiri stúlkum tækifæri á að iðka sína íþrótt upp alla flokka.

Eftir sem áður mun félagið standa að rekstri allra flokka kvenna í handknattleik. Frá þessu er greint á heimasíðu KA.

Undanfarin ár hafa Knattspyrnufélag Akureyrar og Íþróttafélagið Þór teflt fram sameiginlegu keppnisliði í 2. flokki kvenna og meistaraflokki kvenna í knattspyrnu undir merkjum Þór/KA. Fyrir komandi keppnistímabil styður aðalstjórn KA að fyrirkomulag verði óbreytt og kvennalið spili undir merkjum Þór/KA í 2. flokki kvenna og meistaraflokki kvenna í vetur og á komandi sumri. En frá og með næsta hausti mun KA hefja rekstur 2. flokks og meistaraflokks kvenna og tefla fram liðum í báðum flokkum sumarið 2018.

Að sama skapi mun óbreytt fyrirkomulag gilda um rekstur sameiginlegs liðs KA og Þórs undir merkjum KA/Þór í handknattleik kvenna til loka yfirstandandi keppnistímabils en frá og með keppnistímabilinu 2017-2018 mun KA tefla fram handknattleiksliðum kvenna undir merkjum félagsins.

Sjá einnig : Harðar deilur milli Þórs/KA og KA vegna ráðstöfunar 2 milljóna króna

 

UMMÆLI

Sambíó