Skíðasvæðinu á Dalvík lokað í kjölfar dóms

Frá skíðasvæðinu á Dalvík

Skíðafélag Dalvíkur hefur ákveðið að loka skíðasvæðinu í Böggvisstaðafjalli um óákveðinn tíma frá og með þriðjudeginum 4. apríl. Ákvörðunin er tekin í kjölfar dóms héraðsdóms Norðurlands eystra þar sem skíðafélaginu er gert að greiða skíðakonu rúmar 7,7 miljónir, auk vaxta og málskostnaðar í skaðabætur vegna skíðaóhapps í fjallinu.

Í yfirlýsingu frá stjórn skíðafélagsins segir að næstu dagar verði notaðir til þess að fara yfir stöðuna og kanna meðal annars hvort rekstrargrundvöllur svæðisins sé brostinn. Gert er ráð fyrir að í lok vikunnar liggi fyrir hvort svæðið verður opnað aftur í vetur.

Veturinn í vetur hefur verið snjóléttur og nú eru lágmarksaðstæður á skíðasvæðinu en samt sem áður hefur svæðið verið opið í 75 daga á skíðavertíðinni.

Á skíðasvæðinu starfa sjö starfsmenn í fimm stöðugildum. Rúmlega 100 börn og unglingar stunda æfingar hjá félaginu og eru fjórir þjálfarar auk aðstoðarfólks sem sjá um kennslu og þjálfun.

Umræddan dóm má lesa með því að smella hér.

Skíðakonunni voru dæmdar 7,7 milljónir króna í bætur, með vöxtum frá þeim degi sem slysið varð. Hún fékk gjafsókn úr ríkissjóði. Í dómnum kemur fram að konan hafi verið varaformaður skíðafélagsins þegar slysið varð en hún gat lengi vel ekki sinnt vinnu vegna meiðsla sem hún varð fyrir.

Slysið atvikaðist með þeim hætti að hún skíðaði fram af stalli sem búinn hafði verið til með troðara og var ekki sérstaklega merktur.

UMMÆLI