![](http://www.kaffid.is/wp-content/uploads/2017/05/18835147_10211091828444585_635666461_n-650x488.jpg)
Mikinn reyk leggur frá eldsvoðanum
Mikinn reyk leggur yfir stóran hluta Akureyrar eftir stórbruna í húsnæði í Nesjahverfi, iðnaðarhverfi rétt ofan Akureyrar. Talið er að eldur hafi kviknað í húsnæði véla- og bátaverkstæðisins Seiglu skömmu eftir miðnætti.
Allt tiltækt slökkvilið var kallað út og vinnur nú hörðum höndum við að ráða niðurlögum eldsins. Búið er að girða svæðið af og loka götum í kring.
Lögregla hvetur fólk til að loka gluggum
Þykkan reyk leggur frá brunanum og yfir vestasta hluta bæjarins. Fólk er hvatt til að loka gluggum og auka kyndingu í húsum sínum.
Lögreglumaður á vettvangi sagði í samtali við Kaffið að aðstæður til slökkvistarfs gætu verið betri, vindáttin mætti vera betri en var vongóður um að það væri hægt að slökkva eldinn.
![](http://www.kaffid.is/wp-content/uploads/2017/05/18836100_10153972709272537_341808954_o-650x366.jpg)
Eldurinn kviknaði í húsnæði Seiglu
UMMÆLI