45 félagar í Myndlistarfélaginu sýna í Færeyjum

45 félagar í Myndlistarfélaginu sýna í Færeyjum

 „JÁ JÁ“  sýning félaga í Myndlistarfélaginu Í Gallarí Havnará

Félagar í Myndlistarfélaginu á Akureyri sýna nú verk sín í Gallerí Havnará í Þórshöfn í Færeyjum en sýningin var opnuð laugardaginn 13. september.

Opnunardagurinn var fallegur, margmenni, stemning og gleði við opnun. Stjórn Myndlistarfélagsins vonar að þetta verði fyrsta skrefið í samstarfi myndlistarmanna þessara tveggja landa. „Við erum afar þakklát fyrir frábærar móttökur“. Sýningin er opin daglega frá 16.00-18.00 til og með sunnudagsins 21. september.

Sýning þessi sem fyrst var sett upp í Mjólkurbúðinni á Akureyri á Akureyrarvöku og svo í Gallarí Havnará í Þórshöfn í Færeyjum, er fyrsta skrefið í samstarfi við systursamtök okkar í Færeyjum, Føroysk Myndlistafólk. Okkur barst til eyrna að færeyingar kölluðu íslendinga „Jáara“ og þannig varð titill sýningainnar til.
   
Verkin eru fjölbreytt, hver og einn af 45 þátttakendum syngur með sínu nefi. Við fögnum fjölbreytileikanum, hann er okkar styrkur. Sýningin endurspeglar þá miklu grósku sem nú á sér stað í myndlist á Akureyri og nærsveitum. Fimm félagar í  FøroyskMyndlistafólk opna síðan sýningu í Mjólkurbúðinni á Akureyrarvöku á næsta ári. Við væntum þess að þetta samstarf muni vaxa og dafna.

Myndlistarfélagið á Akureyri er hagsmunasamtök myndlistarmanna á Akureyri og er þeirra málsvari. Félagið vinnur að því að efla umræðu um myndlist, auka þekkingu og fræðslu, koma á samvinnu við listamenn, hér á landi og erlendis, ásamt því að standa fyrir sýningum á verkum félaga Myndlistarfélagsins.  

Myndlistarfélagið sér um rekstur Mjólkurbúðarinnar, sal Myndlistarfélagsins í Listagilinu á Akureyri og á þessu ári verða 25 sýningar og viðburðir í salnum. Samsýningar félagsmanna í Mjólkurbúðinni eru á Akureyrarvöku og fyrir jólin. Félagið er einnig í samstarfi við Menningarfélag Akureyrar og næsta sýning félagsins í Hofi er komin á dagskrá sumarið 2026.  

Eftirtaldir listamenn eiga verk á sýningunni:

Aðalbjörg María Ólafsdóttir – AddaAðalheiður Sigríður EysteinsdóttirAðalsteinn Þórsson,  Anna GunnarsdóttirAnna Þóra KarlsdóttirArna Guðný Valsdóttir, Ásta Bára Pétursdóttir, Björg EiríksdóttirBorghildur GuðmundsdóttirBrynja Harðardóttir TveitenBrynhildur KristinsdóttirDagrún MatthíasdóttirEgill Logi JónassonElísabet ÁsgrímsErwin van der WerveGillian PokaloGuðbjörg RingstedGuðmundur Ármann Sigurjónsson Hadda BjarnadóttirPálína GuðmundsdóttirHallgrímur Stefán IngólfssonHerdís Björk ÞórðardóttirHjördís FrímannHlynur HallssonHrafnhildur ÝrDencheHrefna Harðardóttir Jóna Bergdal JakobsdóttirJonna Jónborg SigurðardóttirJónína Björg HelgadóttirJónína Mjöll Þormóðsdóttir, Joris Rademaker, Karl GuðmundssonKarólína BaldvinsdóttirKristján HelgasonMargrét JónsdóttirMaría Sigríður JónsdóttirPia Rakel SverrisdottirRebekka Kühnis, Rósa Júlíusdóttir, Rósa NjálsdóttirSigurður MarStefan BessasonTereza KociánThora LoveThora Sólveig Bergsteinsdóttir.

COMMENTS