73 nemendur brautskráðust frá Verkmenntaskólanum á Akureyri við hátíðlega athöfn í Hofi á Akureyri í gær. Benedikt Barðarson brautskráði nú fyrsta námshópinn síðan hann tók við stöðu skólameistara VMA 1. ágúst síðastliðinn en hann brautskráði einnig nemendur þegar hann leysti Sigríði Huld af í námsleyfi hennar sem skólameistari skólaárið 2019 til 2020.
Í brautskráningarræðu sinni ræddi hann meðal annars mikilvægi VMA í samfélaginu
„Framhaldsskóli snýst auðvitað um undirbúning nemenda undir frekara nám eða sérhæfð störf en hann snýst líka um alhliða þroska, þátttöku í samfélaginu, siðferðisvitund, ábyrgðarkennd, víðsýni, frumkvæði, umburðarlyndi, jafnrétti, sjálfstraust og gagnrýna hugsun,“ sagði Benedikt meðal annars.
Ítarlega umfjöllun um brautskráninguna má finna á vef VMA með því að smella hér.


COMMENTS