6 milljón króna styrkur til lagningar ljósleiðara til HríseyjarMynd: Almar Alfreðsson/Akureyri.is

6 milljón króna styrkur til lagningar ljósleiðara til Hríseyjar

Fjarskiptasjóður samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins hefur samþykkt að veita Akureyrarbæ 6 milljón króna styrk til lagningar stofnstrengs með ljósleiðara til Hríseyjar. Fjárhæðin nýtist til að greiða hluta kostnaðar við lagningu strengsins 3-4 km leið frá fasta landinu yfir sundið til Hríseyjar. Þetta kemur fram á vef Akureyrarbæjar.

Í minnisblaði sem Ásthildur Sturludótir, bæjarstjóri, sendi fjarskiptasjóði 23. febrúar sl. fyrir hönd bæjarstjórnar Akureyrar segir m.a.:

Nettengingar í Hrísey eru nú í gegnum örbylgjusamband sem hindrar fulla afkastagetu við flutning á efni um internetið og hamlar hraðvirkni í tölvuvinnslu. Afar brýnt er að úr þessu verði bætt sem fyrst. Með því að tengja Hrísey við ljósleiðara má tryggja betur fasta búsetu í eyjunni og gera hana að álitlegum búsetukosti fyrir fólk í öllum starfsgreinum. Ljósleiðaratenging yrði einnig til að efla ferðaþjónustu í Hrísey sem hefur vaxið fiskur um hrygg á undanförnum árum.

Finna þarf hagkvæmasta kostinn við lagningu ljósleiðara yfir sundið frá fasta landinu til eyjarinnar í samráði og samvinnu við þar til bæra aðila og undirbúa tengingu við hús í byggðakjarnanum líkt og gert er í öðru þéttbýli á Íslandi.

Hér með er óskað eftir viðræðum um hvernig best er að fjármagna þessa framkvæmd, hvaða gögn þurfa að liggja fyrir af Akureyrarbæjar hálfu og hvað þarf til að hrinda í framkvæmd lagningu ljósleiðara til Hríseyjar eins fljótt og auðið er.

„Ég fagna mjög þessum jákvæðu undirtektum fjarskiptasjóðs og nú verður leitað allra leiða til að fjármagna það sem upp á vantar til þess að unnt verði að tengja Hrísey við ljósleiðaranet Íslands,“ sagði Ásthildur við heimasíðu bæjarins þegar fregnir bárust af styrkveitingu sjóðsins.

UMMÆLI

Sambíó