Vilhelm Þorsteinsson EA nálgast ÍslandMynd: Samherji.is/Árni Rúnar Hrólfsson

Vilhelm Þorsteinsson EA nálgast Ísland

Vilhelm Þorsteinsson EA 11, nýtt skip Samherja, sigldi inn fyrir 200 mílna lögsögu Íslands í gærmorgun. Skipið er sagt vera fullkomið og spar­neytið upp­sjáv­ar­skip en það kost­ar 5,7 millj­arða króna til­búið á veiðar.

Skipið mun koma til heimahafnar á Akureyri kl.10.00 í fyrramálið, á laugardagsmorgun, og leggjast að við Togarabryggjuna.

„Vegna sóttvarnaráðstafana verður því miður ekki hægt að hafa skipið til sýnis að svo stöddu en fyrir áhugasama minnum við á klukkutíma þátt á sjónvarpsstöðinni N4 sem sýndur verður á mánudaginn annan í páskum kl. 20.00,“ segir í tilkynningu á vef Samherja.

Sambíó

UMMÆLI