Nýtt kennileiti fyrir heimskautsbauginn vígt í Grímsey

Mynd: akureyri.is

Í dag fór fram í Grímsey vígsla á listaverkinu Orbis et Globus sem er nýtt kennileiti fyrir heimsskautsbauginn eftir Kristinn E. Hrafnsson og Steve Christer hjá Studio Granda. Orbis et Globus er kúla sem er 3 metrar í þvermál. Hugmynd listamannana er sú að hún muni færast út stað í samræmi við hreyfingar heimskautsbaugsins sem yfirgefur eyjuna líklega um árið 2047

Tillaga kristins og Studio Granda sigraði í samkeppni um nýtt kennileiti sem efnt var til undir lok ársins 2013 og voru úrslit í samkeppninni kunngjörð í mars 2014.

Kúlan er nú loks komin á sinn stað og var vígð í blíðskaparveðri á heimskautsbaugnum að viðstöddum fjölda gesta.

Ávörp fluttu Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri, Kristinn E. Hrafnsson listamaður og Elías Bj. Gíslason frá Ferðamálastofu. Þorkell Ásgeir Jóhannsson lék á básúnu fyrir og eftir vígslu verksins og eftir ávarp Kristins blésu þeir félagar Kristinn og Steve sápukúlum í kringum verkið.

Sambíó

UMMÆLI