Meðalhitinn á Íslandi aldrei hærri en í júlí á Akureyri

Meðalhitinn á Íslandi aldrei hærri en í júlí á Akureyri

Í júlí var meðalhitinn á Akureyri 14,3°C. Meðalhiti eins mánaðar hefur aldrei farið yfir 14 stig í mælingasögunni. Þetta kemur fram í færslu Einars Sveinbjörnssonar, veðurfræðings, á Facebook.

„ALDREI HÆRRI MÁNÐARMEÐALHITI!!!Í júlí var meðalhitinn á Akureyri 14,3°C og á Torfum í Eyjafjarðarsveit tæplega það. Þessar tvær stöðvar komust yfir 14 stigin og mögulega einhverjar Vegagerðarstöðvar til viðbótar? Meðalhiti eins mánaðar hefur aldrey farið yfir 14 stig í mælingasögunni. Læt Veðurstofunni að skera úr um eldra hitametið (Líklega 13,7 og kannski 14,0°C ?),“ skrifar Einar.

Hann segir að hvað sem því líður þá sé klárlega um að ræða Íslandsmest af þessum toga. Hitinn í júlí hafi verið heilu stigi meira en næst hlýjasti júlí á Akureyri sem var árið 1933 þegar meðalhitinn var 13,3°C.

„Eflaust veð þónokkur stöðvarmet slegin, en þó ekki sunnan- og vestanlands. Í Reykjavík var júlíhitinn nærri meðallagi. Úrkoma þó ekki nema 1/2 meðalúrkoma og sólskinstundir markvert færri en að jafnaði. Fleira áhugavert á eftir að koma í ljós þegar júlí 2021 verður gerður upp á sinn hefðbundna hátt síðar í vikunni. M.a. það að hámarkshiti dagsins náði 20 stigum einhvers staðar á landinu alla daga nema einn í þesssum nýliðna júlímánuði,“ skrifar Einar.


UMMÆLI

Sambíó