Einstaklingsstyrkir fræðslusjóða hækka frá áramótum

Starfsfræðslusjóðirnir Landsmennt, Sveitamennt, Ríkismennt og Sjómennt hafa ákveðið að hækka hámark einstaklingsstyrkja frá og með 1. janúar 2018.

Hámarksgreiðsla á ári fer úr kr. 75.000,- fyrir almennt nám í kr. 100.000,-

Þriggja ára uppsafnaður styrkur hækkar úr kr. 225.000,- í kr. 300.000,- fyrir eitt samfellt nám

Hámarksstyrkur vegna námskeiða sem falla undir frístunda/tómstundanámskeið munu hækka í kr. 30.000,- á ári og dregst jafnframt af heildarupphæð einstaklingsstyrks þess árs.

Þá er athygli vakin á því að sérstakur styrkur vegna meiraprófs fellur undir almenna einstaklingsstyrki og verður því áfram kr. 100.000.-

Athygli er vakin á að umræddar breytingar sem taka gildi 1. janúar 2018 eiga við um nám sem hefst frá og með þeim tíma.

Aðrar reglur sjóðanna verða óbreyttar og gilda samhliða fyrrgreindum breytingum.


UMMÆLI