Hildur gefur kost á sér í 2. sæti hjá Sjálfstæðisflokknum

Hildur gefur kost á sér í 2. sæti hjá Sjálfstæðisflokknum

Hildur Brynjarsdóttir, viðskiptafræðingur, gefur kost á sér í 2. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins á Akureyri sem fer fram 26. mars næstkomandi.

Hildur útskrifaðist með stúdentspróf frá Kvennaskólanum í Reykjavík árið 2009 og sem viðskiptafræðingur úr Háskólanum á Akureyri árið 2014. Hildur starfar sem þjónustufulltrúi hjá Landsbankanum. Húnhefur setið í stjórn Sjálfstæðisfélags Akureyrar frá því í febrúar 2021.

Hildur hefur verið búsett á Akureyri frá árinu 2010. Hún er fædd 14. mars 1989 og uppalin í Mosfellsbæ. Unnusti hennar er Davíð Örn Oddsson, lánastjóri hjá Íslandsbanka, saman eiga þau tvær dætur.

Samfélagið okkar stendur á sterkum grunni en til framtíðar þarf að byggja á stöðugleika, stöðugleika í rekstri og stöðugleika í þjónustu. Grunnstoðir þarf að efla með markvissum aðgerðum til að laða að fleiri íbúa. Akureyri hefur alla burði til að vera framúrskarandi sveitarfélag og ég býð fram krafta mína til að láta það verða að veruleika,“ segir Hildur í tilkynningu.

UMMÆLI

Sambíó