Nóa Konfektkassi tileinkaður Akureyri

Nóa Konfektkassi tileinkaður Akureyri

Það fór ekki framhjá Akureyringum þegar Krónan opnaði dyr sínar í fyrsta skipti þann 1. desember. Margir ráku þá augun í nýjan og fallegan Nóa Konfektkassa sem skartar mynd af Akureyrarkirkju og er framleiddur sérstaklega í tilefni opnunar nýju verslunarinnar.

„Fáar vörur eru jafn órjúfanlegur hluti af jólunum hjá fjölmörgum Íslendingum eins og konfektið frá Nóa Síríus. Það er því mikill heiður fyrir okkur hjá Krónunni að opnun verslunarinnar á Akureyri skuli vera heiðruð með þessum hætti,“ segir Markús Andri Sigurðsson, vörumerkjastjóri Krónunnar, og er þakklátur fyrir viðtökurnar: „Viðskiptavinir okkar á Akureyri hafa tekið konfektkassanum fagnandi og því ljóst að myndin af Akureyrarkirkju mun prýða mörg heimili á Norðurlandi þessi jólin.“

Alda Björk Larsen, markaðsstjóri Nóa Síríus, er ánægð með útkomuna: „Við leituðum lengi að hinni fullkomnu mynd á kassann og á endanum varð þessi fallega mynd af Akureyrarkirkju, eftir Helgu Rósu Guðjónsdóttur, fyrir valinu. Kirkjan er auðvitað sterkt kennileiti í bænum og vel við hæfi að hún sé í aðalhlutverki í þessum fyrsta konfektkassa sem er sérstaklega tileinkaður Akureyri.“

Nýji konfektkassinn er 440 g. og bætist í stóra og fjölbreytta flóru Nóa konfekts. Þannig að hvort sem jólin verða rauð eða hvít þá verða þau allavega gómsæt norðan heiða.

UMMÆLI

Sambíó