Afgreiðslutímar og þjónusta Akrueyrarbæjar tekur að venju breytingum um jól og áramót. Helstu upplýsingar um breytingar á þjónustu bæjarins hafa verið birtar á vef Akureyrarbæjar og má sjá hér að neðan:
Ráðhúsið, Geislagötu 9, verður opið virka daga kl. 9-15 en lokað verður á aðfangadag og gamlársdag. Sama gildir um velferðarsvið og fræðslusvið í Glerárgötu 26.
Þjónusta Strætisvagna Akureyrar og ferliþjónusta verður hefðbundin á virkum dögum í kringum jól og áramót. Ekið verður samkvæmt áætlun til kl. 12 á aðfangadag og gamlársdag. Enginn akstur verður á jóladag og nýársdag. Helgarakstur strætisvagna verður annan í jólum og 2. janúar.
Listasafnið á Akureyri er opið alla daga fram að jólum kl. 12-17. Lokað verður dagana 24., 25., 31. desember og 1. janúar.
Amtsbókasafnið verður opið sem hér segir:

Afgreiðslutímar gámasvæðis við Réttarhvamm:
| 23. desember | 13-18 |
| 24. desember | Lokað |
| 25. desember | Lokað |
| 26. desember | 13-17 |
| 27. desember | 13-18 |
| 28. desember | 13-18 |
| 29. desember | 13-18 |
| 30. desember | 13-18 |
| 31. desember | Lokað |
| 1. janúar | Lokað |
Sundlaugar
| Sundlaug Akureyrar | Glerárlaug | Sundlaugin í Hrísey | |
| 23. desember | 6.45-18.00 | 6.45-13.00 | LOKAÐ |
| 24. desember | 6.45-12.00 | 6.45-12.00 | LOKAÐ |
| 25 .desember | LOKAÐ | LOKAÐ | LOKAÐ |
| 26. desember | 11.00-19.00 | LOKAÐ | LOKAÐ |
| 27 .desember | 6.45-19.00 | 6.45-21.00 | 15.00-18.00 |
| 28. desember | 6.45-19.00 | 9.00-14.30 | 13.00-16.00 |
| 29. desember | 9.00-19.00 | 9.00-12.00 | 13.00-16.00 |
| 30. desember | 6.45-21.00 | 6.45-21.00 | 15.00-19.00 |
| 31. desember | 6.45-12.00 | 6.45-12.00 | LOKAÐ |
| 1. janúar | LOKAÐ | LOKAÐ | LOKAÐ |
Gámar fyrir flugeldarusl verða við Bónus Langholti, Bónus Kjarnagötu og við Hagkaup.
Með því að smella hér getur þú nálgast upplýsingar um afgreiðslutíma og þjónustu ýmissa fyrirtækja og stofnana á Akureyri sem bjóða upp á afþreyingu, veitingar og verslun. Athugið að skjalið er á ensku.


COMMENTS