Brynjar Helgi Ásgeirsson, forstöðumaður í Hlíðarfjalli, segist eiga von á því að helgin verði góð í Hlíðarfjalli en aðstæður hafa verið erfiðar síðustu daga og vikur vegna hlýinda. Þetta kemur fram á vef Akureyrarbæjar.
Þrátt fyrir erfiðar aðstæður hefur tekist að halda brautum opnum og hvert tækifæri er notað til þess að framleiða snjó.
„Við gátum framleitt alla síðustu helgi og náðum þá að fylla upp í eyður í brautunum þar sem farið var að sjá allverulega í grjót og mela. Þær eru flestar fínar núna en þó er aðeins ein braut opin fyrir ofan Strýtu sem stendur. Það er misjafnt eftir spám hvoru megin við núllið hitastigið verður næstu daga en við erum vongóð um að geta framleitt meira því þótt það sé hláka í byggð þá er auðvitað mun kaldara til fjalla og við þurfum bara -4 gráður til að geta keyrt snjóbyssurnar í gang. Þær eru allar í viðbragðsstöðu,“ segir Brynjar Helgi Ásgeirsson, á vef Akureyrar.
Að sögn Brynjars var þokkaleg aðsókn um síðustu helgi og ekki langt frá því sem var á sama tíma í fyrra. „Við höfum verið að aðgangsstýra þessu með því að selja 1.000 miða í hvert holl, skiptum helgardögunum upp í fyrri og seinnipart og komum þannig í veg fyrir allan troðning eða að fólk lendi í löngum biðröðum. Ég heyri ekki annað en að fólk sé mjög ánægt með þetta. Ég á ekki von á öðru en að næsta helgi verði góð miðað við aðstæður og reikna með að það verði mikil aðsókn í hollin okkar yfir helgina. Síðan er bara að krossa fingur og vona að við getum keyrt snjóbyssurnar á fullum dampi en það sem gleður mig auðvitað mest er að flestar veðurspár gera ráð fyrir snjókomu þegar líður á næstu viku. Ég er fullviss um að þetta er allt upp á við hjá okkur og mun bæta í snjóalög von bráðar,“ segir Brynjar Helgi Ásgeirsson.


COMMENTS