NPA miðstöðin opnar útibú á Akureyri

NPA miðstöðin opnar útibú á Akureyri

NPA miðstöðin hefur tilkynnt um opnun útibús á Akureyri. Aðsetur NPA verður á 6. hæð í Hafnarstræti 97, á sama stað og Grófin geðrækt. NPA er samvinnufélag fatlaðs fólks með notendastýrða persónulega aðstoð.

Á hæðinni er NPA miðstöðin með aðstöðu til þess að taka á móti fólki, halda fundi og sinna fræðslu. Félagsfólk NPA miðstöðvarinnar getur einnig nýtt aðstöðu NPA miðstöðvarinnar á Akureyri til þess að taka atvinnuviðtöl, halda starfsmannafundi, skipuleggja fræðsluerindi o.fl.

Einn ráðgjafi hjá NPA miðstöðinni, Breki Arnarsson, verður með fasta viðveru á skrifstofunni á Akureyri. Breki er menntaður vinnusálfræðingur og hefur starfað sem NPA ráðgjafi hjá miðstöðinni frá janúar 2023. Hans helsta hlutverk verður að veita félagsfólki NPA miðstöðvarinnar á Norðurlandi og Vestfjörðum ráðgjöf og aðstoðarfólki þess, auk þess að byggja upp starfsemi miðstöðvarinnar á Norðurlandi.  

„Með opnun skrifstofunnar á Akureyri gefst NPA miðstöðinni nú enn betra tækifæri til þess að veita öfluga nærþjónustu við félagsfólk sitt á Norðurlandi en áður. Fulltrúar NPA miðstöðvarinnar hlakka mikið til að styrkja enn frekar sambandið við félagsfólk miðstöðvarinnar á landsbyggðinni og að geta einnig verið til staðar fyrir fatlað fólk sem hefur áhuga á að fræðast meira um NPA og fá ráðgjöf um allt sem því við kemur,“ segir í tilkynningu.

Félagsfólk NPA miðstöðvarinnar er hvatt til þess að nýta sér aðstöðuna og sömuleiðis eru öll áhugasöm hvött til að hafa samband við NPA miðstöðina og panta tíma hjá Breka í ráðgjöf.

COMMENTS