Brynja Dís sigraði Hæfileikakeppni Akureyrar

Brynja Dís sigraði Hæfileikakeppni Akureyrar

Brynja Dís sigraði Hæfileikakeppni Akureyrar sem fram fór í Hofi 3. apríl með atriði þar sem að hún flutti frumsamið ljóð. Dansatriðið Skólarapp hlaut verðskuldað 2. sæti en danshópinn mynda þær Alexandra, Eva Elísabet, Hrafntinna Rún, Karítas Hekla, Karítas Von, Margrét Varða og Sóldögg Jökla. Kristín Bára Gautsdóttir landaði þriðja sætinu fyrir frábært söngatriði þar sem hún söng lagið from The start með Laufey. Þetta kemur fram á vef bæjarins.

Hæfileikakeppni Akureyrar er fyrir börn í 5. – 10. bekk. Tæplega 20 atriði, um 40 krakkar, gerðu keppnina að einstökum viðburði.

„Stemningin var ótrúleg, þar sem áhugasamir áhorfendur fylgdust spenntir með. Hæfileikakeppnin er ekki bara keppni heldur einnig tækifæri til að styrkja ungt fólk og hvetja það til að þróa hæfileika sína,“ segir á vef Akureyrar.

Viðburðurinn er styrktur af Barnamenningarsjóði Akureyrarbæjar.

Skoðaðu viðburðadagatal Barnamenningahátíðar HÉR.

COMMENTS