Færðu barnadeild sjúkrahússins leikföng og húsgögn að gjöfLjósmynd: Sjúkrahúsið á Akureyri

Færðu barnadeild sjúkrahússins leikföng og húsgögn að gjöf

​Barnadeild Sjúkrahússins á Akureyri fékk afar rausnarlega gjöf frá Ladies Circle 20 Akureyri. Fulltrúar samtakanna komu færandi hendi á deildina og færðu m.a. tvo Lazyboy stóla, sófaborð, hliðarborð, fjölbreytt úrval leikfanga og spil, auk veglegrar gjafakörfu handa starfsfólkinu. Þetta segir í tilkynningu á Facebook síðu SAk í dag. Ladies Circle eru alþjóðleg góðgerðar- og vináttusamtök fyrir konur á aldrinum 18-45 ára.

Elma Rún Ingvarsdóttir, staðgengill deildarstjóra Barnadeildar, tók á móti gjöfinni fyrir hönd deildarinnar og þakkaði Ladies Circle 20 innilega fyrir höfðinglegan og hlýjan stuðning. „Það er alltaf ómetanlegt að finna fyrir velvild samfélagsins. Svona gjafir gera mikinn mun fyrir bæði börnin sem dvelja hjá okkur og starfsfólkið sem sinnir þeim af alúð alla daga,“ sagði Elma Rún.

COMMENTS