Viðhaldsvinna hófst á brúnni yfir Jökulsá á Fjöllum við Grímsstaði þann 18. ágúst . Brúin verður að mestu lokuð meðan á framkvæmdum stendur en verður opnuð fjórum sinnum á dag og á nóttunni. Framkvæmdin stendur yfir í eina til tvær vikur.
Unnið verður alla virka daga frá klukkan 8:00 á morgnana til klukkan 19:00 á kvöldin. Opið verður fyrir umferð yfir brúna á eftirfarandi tímum dags:
09:45 – 10:15
12:00 – 13:00
14:45 – 15:15
16:45 – 17:15
Brúin verður einnig opin fyrir umferð um helgar og virkum dögum frá kl. 19:00 að kvöldi til 08:00 að morgni næsta dags.
Vegagerðin hvetur vegfarendur til að sýna þolinmæði, fylgja merkingum og virða fyrirmæli á svæðinu.


COMMENTS