Aldrei fleiri stúdentar við Háskólann á Akureyri

Aldrei fleiri stúdentar við Háskólann á Akureyri

Í næstu viku eru Nýnemadagar í Háskólanum á Akureyri. Þar er tekið á móti nýstúdentum í grunnnámi. Í ár tekur Háskólinn á móti stærsta nýstúdentahópi hingað til eða um 1500 nýstúdentum. Það er aukning um 13 prósent frá fyrra ári.

Í framhaldsnámi í stjórnun við Viðskiptadeild eru um 115 stúdentar að hefja nám, það er aukning um rúm 35 prósent frá síðasta ári. Þá er Kennaradeild ein af þeim deildum sem eru að taka á móti sínum stærsta hópi frá upphafi. Þetta eru svipmyndir af þeirri aukningu í fjölda stúdenta sem háskólinn tekur á móti þetta skólaárið.

„Nýnemadagar eru einn af mínum uppáhalds dögum hér í HA. Það er alltaf svo mikil tilhlökkun í loftinu, bæði hjá okkur sem erum fyrir og hjá þeim sem eru að stíga sín fyrstu skref í þessu geggjaða samfélagi. Ég man sjálf vel hversu spennandi það var að byrja hér og hvað það skipti mig miklu að finna strax fyrir hlýjunni og samheldninni sem einkennir HA,“ segir Dagbjört Elva Kristjánsdóttir, forseti Stúdentafélags Háskólans á Akureyri, í samtali við vef HA, unak.is.

Á Nýnemadögum fá nýstúdentar fræðslu um háskólasamfélagið, aðstöðuna, félagslífið og fyrirkomulag náms. Í tilkynningu Háskólans segir að mikilvægt sé að nýta sér dagskrá Nýnemadaga til að kynnast námsumhverfinu og til að hitta samstúdenta því gott sé að mynda tengsl strax á fyrsta degi.

„Þessi vika er frábært tækifæri til að kynnast nýju fólki, skapa minningar og finna fyrir kraftinum sem fylgir því að vera hluti af HA. Ég hlakka mikið til að taka á móti ykkur og fagna með ykkur byrjuninni á ykkar eigin ævintýri hér í HA.“ Í

Ítarleg dagskrá fyrir nýstúdenta í grunnnámi er aðgengileg á heimasíðu háskólans, unak.is.

COMMENTS