Þriðjudaginn 23. september mun Þorlákur Axel Jónsson aðjúnkt við Kennaradeild verja doktorsritgerð sína í í menntavísindum við við Deild kennslu- og menntunarfræði við Háskóla Íslands. Vörnin fer fram í Hátíðarsal Háskóla Íslands og verður henni einnig streymt.
Ritgerðin ber heitið Innritun nýnemahópa og námsframvinda í framhaldsskóla út frá efnislegri, félagslegri og menningarlegri stöðu nemenda á tímum semkeppnisprófa. Andmælendur eru Dr. Gunnlaugur Magnússon, lektor við Uppsala Universitet og Dr. Þórólfur Þórlindsson Professor Emeritus við Háskóla Íslands. Aðalleiðbeinandi Þorláks Axels er Dr. Amalía Björnsdóttir, prófessor við Menntavísindasvið Háskóla Íslands og meðleiðbeinandi dr. Ólöf Garðarsdóttir, prófessor og forseti Hugvísindasviðs Háskóla Íslands.
Um verkefnið
Rannsakað var hver tengsl þjóðfélagsstöðu nýnema framhaldsskóla 2006 voru við fyrri námsárangur þeirra og hver námsframvindan var á framhaldsskólastigi næstu sex árin. Rannsóknarhefðum í félagsfræði menntunar um mikilvægi skólakerfis í endurnýjun félagslegra yfirráðatengsla og um hvernig félagslegar aðstæður móti athafnir fólks og samfélagið um leið var teflt saman. Gögn frá opinberum stofnunum um félagslegan bakgrunn nemenda, námsárangur og námslok á framhaldsskólastigi voru rannsökuð með tölfræðilegum aðferðum sem annars hafa sjaldan verði notaðar í íslenskum menntarannsóknum á borð við línulegar- og tvíkosta fjölstigagreiningar á mun milli skóla. Niðurstöðurnar voru að félagsleg aðgreining birtist við innritun í framhaldsskóla þar sem mikill munur var á þjóðfélagsstöðu nýnemahópa einstakra skóla. Námsárangur í grunnskóla hafði þó meiri tengsl við innritun í framhaldsskóla og skýrði líkur á námslokum á framhaldsskólastigi á meðan þjóðfélagsstaða hafði takmarkað skýringargildi fyrir líkur á námslokum.
Þorlákur Axel
Þorlákur Axel Jónsson hóf kennslu við Menntaskólann á Akureyri að loknu BA prófi við Háskóla Íslands 1987, lauk cand. mag. prófi við Kaupmannahafnarháskóla 1994, kenndi við MA í yfir 20 ár og hefur kennt við Háskólann á Akureyri í yfir áratug. Kennslugreinar hafa verið saga, félagsfræði og aðrar félagsgreinar í framhaldsskóla og námskeið í félagsgreinum, sögu og hagnýtingu tölfræðilegra aðferða við kennaradeild Háskólans á Akureyri.
Frétt unak.is


COMMENTS