Nú um helgina, 13. til 14. september, fer fram REDNEK Bikarmót í rallycross á Aksturíþróttasvæði AIH. Þar stíga félagarnir Andri Bergsteinn Arnviðarson og Svavar Skúli Stefánsson á svið undir merkinu Team Aflið, en þeir keppa til styrktar Aflsins – samtök fyrir þolendur ofbeldis.
Með því að merkja bílana sína „Team Aflið“ vilja Andri og Svavar vekja athygli á mikilvægu starfi Aflsins og hvetja fólk til að styrkja samtökin með frjálsum framlögum.
Aflið – samtök fyrir þolendur ofbeldis veitir ráðgjöf og stuðning til þolenda ofbeldis og aðstandenda þeirra. Þjónustan er bæði í formi einstaklingsviðtala og hópastarfs, hún er öllum opin og er veitt án endurgjalds. Allt starf Aflsins byggir á áfalla- og þolendamiðaðri hugmyndafræði og er unnið af menntuðum ráðgjöfum með fjölbreyttan bakgrunn.
REDNEK Bikarmótið er sérstakt minningarmót, haldið í tilefni 10 ára ártíðar Gunna „Rednek“ Viðarssonar. Gunni lést árið 2015 eftir erfið veikindi en var um áratugaskeið ástríðufullur keppandi og áhrifamikill einstaklingur í íslenskri rallycross-sögu. og eru því spor Gunna í Íslensku rallycross-sögunni dýpri en spor flestra annarra. Mótið er haldið honum til heiðurs.
Keppnin býður upp á mikla spennu og skemmtun fyrir áhorfendur – og um leið tækifæri til að sýna stuðning við mikilvægt málefni.


COMMENTS