Stúdentafélag Háskólans á Akureyri, SHA, og öll aðildarfélög SHA hafa birt ályktun varðandi sameiningarviðræður Háskólans á Akureyri og Háskólans á Bifröst. Í ályktuninni er meðal annars sagt að miðað við þau gögn sem liggja fyrir séu Háskólinn á Akureyri og Háskólinn á Bifröst sterkari í sitt hvoru lagi og að möguleg sameining sé ekki til þess fallin að styrkja háskólana.
Hér að neðan má lesa ályktu SHA:
Stúdentafélag Háskólans á Akureyri ályktar, af þeim gögnum sem liggja fyrir og því umfangsmikla samtali sem átt hefur sér stað meðal félagsfólks, að Háskólinn á Akureyri og Háskólinn á Bifröst séu sterkari í sitt hvoru lagi og að möguleg sameining sé ekki til þess fallin að styrkja háskólana tvo. Þeir hópar stúdenta sem háskólarnir þjónusta, áherslur náms og kennslufyrirkomulag eru að svo miklu leiti frábrugðin að stúdentaráð Háskólans á Akureyri telur hagsmunum beggja skóla betur borgið, verði fallið frá áformum um sameiningu þeirra. Stúdentafélag Háskólans á Akureyri leggst einróma gegn sameiningu Háskólans á Akureyri og Háskólans á Bifröst.
Fyrir hönd Stúdentafélags Háskólans á Akureyri
Stúdentaráð HA
Magister, félag kennaranema
Eir, félag heilbrigðisvísindanema
Data, félag tæknifræði- og tölvunarfræðinema
Kumpáni, félag félagsvísindanema- og sálfræðinema
Stafnbúi, félag auðlindanema
Reki, félag viðskiptanema
Þemis, félag laganema“


COMMENTS