Vísindaskóli unga fólksins hjá Háskólanum á Akureyri hlýtur viðurkenningu Rannís

Vísindaskóli unga fólksins hjá Háskólanum á Akureyri hlýtur viðurkenningu Rannís

Handhafi viðurkenningar Rannís fyrir vísindamiðlun ársins 2025 er Vísindaskóli unga fólksins við Háskólann á Akureyri

Viðurkenningin var veitt á opnun Vísindavöku í gær af Sigríði Valgeirsdóttur, fulltrúa ráðuneytis menningar, nýsköpunar- og háskóla. Áslaug Ásgeirsdóttir, rektor Háskólans á Akureyri og Dana Rán Jónsdóttir, verkefnastjóri Vísindaskólans tóku við viðurkenningunni við opnun Vísindavöku Rannís 2025. 

Markmið Vísindaskólans er að bjóða fróðleiksfúsum ungmennum upp á fræðandi og skemmtilega afþreyingu í sumarleyfinu með því að kynnast vísindum og fræðasviðum sem endurspegla fjölbreytt námsframboð HA. Nærri 900 nemendur hafa sótt skólann frá upphafi og hefur þátttaka í Vísindaskólanum stuðlað að því að opna augu þeirra fyrir mikilvægi háskóla- og vísindastarfs. 

Vísindaskóli unga fólksins varð til fyrir ellefu árum þegar Sigrún Stefánsdóttir lagði til við þáverandi rektor að setja á laggirnar skóla að sumarlagi fyrir ungt fólk á aldrinum 11–13 ára. Tilgangurinn var að auka möguleika barna á að taka þátt í uppbyggilegu starfi þegar skólastarfi lýkur að vori. Hugmyndin fékk góðar undirtektir og skólinn tók í fyrsta skipti á móti nemendum árið 2015 með dyggum stuðningi frá Akureyrarbæ og fleiri aðilum. 

Vísindaskólinn stendur yfir í eina viku í júní þar sem kennd eru 5 ólík námskeið með það að markmiði að gefa ungmennum innsýn í starfsemi og rannsóknir ólíkra fræðigreina innan HA. Frá upphafi hefur kennslan verið byggð á virkri þátttöku nemenda og lögð er áhersla á að fá hæfasta fólkið sem völ er á til að miðla sinni þekkingu. Skólinn er í góðri samvinnu við fyrirtæki á svæðinu og auk þess að kynnast vísindastarfi háskólans, hafa nemendur fengið innsýn í starfsemi þeirra. Um 30 fyrirtæki á svæðinu hafa verið heimsótt á þeim 11 árum sem skólinn hefur verið starfræktur, þ.á.m. Norðurorka, Lögreglustöðin, Sundlaug Akureyrar, FabLab, Flugsafnið, Skólphreinsistöðin í Bótinni, Minjasafnið og Kjarnaskógarsvæðið. Vísindaskólinn er þannig ómetanlegur samfélaginu og uppbyggingu á nærsvæðinu. 

Vísindaskóli unga fólksins er eins fyrr seginn rekinn af Rannsóknamiðstöð Háskólans á Akureyri og er verkefnastjórn í höndum Dönu Ránar Jónsdóttur sérfræðings hjá RHA og Sigrúnar Stefánsdóttir stundakennara við háskólann, fyrrverandi forseta hug- og félagsvísindasviðs og upphafsmanneskju skólans.

Á myndinni eru: Vigdís V. Mäntylä, Sigríður Valgeirsdóttir, Dana Rán Jónsdóttir, Áslaug Ásgeirsdóttir, Ágúst Hjörtur Ingþórsson.

COMMENTS