Ný deild í Lundarseli þjónar þörfum einstakra nemenda

Ný deild í Lundarseli þjónar þörfum einstakra nemenda

Unnar hafa verið endurbætur á sal leikskólans Lundarseli. Útbúin hefur verið ný og notaleg lítil deild, sem hönnuð er sérstaklega með það að markmiði að koma til móts við þarfir einstakra nemenda. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Akureyrarbæjar í dag.

Ásthildi Sturludóttur, bæjarstjóra Akureyrar, var boðið í heimsókn í Lundasel í gær til að skoða breytingarnar og kynna sér aðstöðuna.

„Ásthildur átti ánægjulegt samtal við starfsfólk leikskólans, þar á meðal Helgu Maríu Þórarinsdóttur leikskólastjóra, Inga Jóhann Friðjónsson aðstoðarleikskólastjóra, Indíönu Hrönn Arnardóttur sérkennslustjóra og Snjólaugu Svönu Þorsteinsdóttur, leikskólakennara í sérkennsluteymi. Rætt var um mikilvægi einstaklingsmiðaðs námsumhverfis og hvernig breytingarnar styðja við það markmið,“ segir í tilkynningu bæjarins.

COMMENTS