Íbúar í Lundarhverfi ánægðir með nærumhverfi sitt

Íbúar í Lundarhverfi ánægðir með nærumhverfi sitt

Um 30 manns mættu á hverfisfund sem haldinn var í Lundarskóla miðvikudaginn 8. október. Fundurinn var hluti af fundaröð Akureyrarbæjar þar sem íbúar fá tækifæri til að ræða málefni hverfisins með bæjarfulltrúum og starfsfólki bæjarins.

Í tilkynningu á vef Akureyrarbæjar segir að íbúar hafi lýst mikilli ánægju með nærumhverfi sitt.

„Hverfið er talið fjölskylduvænt, friðsælt og gróið, með góðu aðgengi að náttúru, þjónustu og íþróttasvæðum. Fólk kann vel að meta stuttar vegalengdir, verslanir og strætó, sem og snyrtilegt umhverfi, góða göngu- og hjólastíga og almennt öryggi í hverfinu. Einnig var lögð áhersla á jákvæða nágrannavörslu og samheldni íbúa,“ segir í umfjöllun Akureyrarbæjar um fundinn.

Þegar rætt var um það sem betur mætti fara, komu meðal annars fram hugmyndir um endurbætur á skólalóð Lundarskóla, að breyta virkni umferðarljósa við Dalsbraut og bætt skipulag vegna fyrirhugaðra framkvæmda við Viðjulund. Þá voru nefndar tillögur um aukið umferðaröryggi, svo sem með radarmælingar í Skógarlundi, biðskyldumerki í Grenilundi og mögulegt hringtorg við Möl og Sand.

„Minniháttar ábendingum hefur þegar verið komið áfram til viðeigandi starfsmanna bæjarins. Stærri og kostnaðarsamari mál verða tekin til umfjöllunar í fagráðum og nefndum bæjarins,“ segir í tilkynningu bæjarins.

COMMENTS