Vísindasjóður Sjúkrahússins á Akureyri, SAk, hefur úthlutað styrkjum að upphæð 8.812.696 krónum fyrir árið 2025.
Úthlutun styrkja úr Vísindasjóði SAk fer fram einu sinni á ári. Vísindasjóður styrkir eingöngu rannsóknarverkefni, en ekki gæðaverkefni eða fræðsluverkefni. Vísindaráð SAk hefur umsjón með matsferli styrkhæfra umsókna í umboði Vísindasjóðs. Greint er frá á vef SAk.
Að þessu sinni var úthlutað til fjögurra verkefna:
- Hannes Petersen
Prevalence of Obstructive Sleep Apnoea (OSA) among 4-9 Years old Children in the General Population. - Laufey Hrólfsdóttir
- Tengsl þyngdaraukningar á meðgöngu og heilsu barna seinna meir
- Alexander Kr. Smárason
- Geðlyfjanotkun kvenna á meðgöngu, á upptökusvæði HSN á árunum 2020-2022
- Þórhalla Sigurðardóttir
- Exploring transformative learning and authenticity in simulation-based learning for nursing students


COMMENTS