Nýr samstarfssamningur um þjónustu Fjölsmiðjunnar á Akureyri

Nýr samstarfssamningur um þjónustu Fjölsmiðjunnar á Akureyri

Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri Akureyrar, og Erlingur Kristjánsson, forstöðumaður Fjölmiðjunnar, undirrituðu í dag nýjan samstarfssamning um þjónustu Fjölsmiðjunnar á Akureyri. Greint er frá á vef bæjarins.

„Markmið samningsins er að efla Fjölsmiðjuna sem starfsþjálfunarstað fyrir ungt fólk á aldrinum 16-24 ára. Einnig er lögð áhersla á að styrkja tengsl og samvinnu Fjölsmiðjunnar og þeirra aðila innan bæjarfélagsins sem vinna með ungu fólki,“ segir í tilkynningu Akureyrarbæjar.

Fjölsmiðjan veitir atvinnulausu ungu fólki vinnu með það að markmiði að hver einstaklingur njóti sín og verði betur í stakk búinn til að takast á við kröfur samfélagsins, hvort sem er á vinnumarkaði eða í námi. Þegar ungmennin eru tilbúin eru þau studd í vinnu eða skóla.

Í Fjölsmiðjunni er rekið mötuneyti, bílaþvottastöð, búð með notuð húsgögn og fleira, auk móttöku fyrir endurvinnslu á tölvum og öðrum raftækjum. Þegar aðsókn er mest sækja um 20-25 ungmenni í Fjölsmiðjuna.

Mynd með frétt: Karólína Gunnarsdóttir, sviðsstjóri velferðarsviðs Akureyrarbæjar, Erlingur Kristjánsson, forstöðumaður Fjölsmiðjunnar, Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri, og Hulda Sif Hermannsdóttir, aðstoðarmaður bæjarstjóra gæddu sér á gúllasi í Fjölsmiðjunni við undirskriftina. /akureyri.is

COMMENTS