Sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar samþykkti á fundi 4. nóvember síðastliðinn að frá og með haustinu 2026 verði grunnskólastig Árskógarskóla fært til Dalvíkurskóla. Í tilkynningu á vef Dalvíkurbyggðar segir að ákvörðunin sé tekin í ljósi fækkunar barna á grunnskólastigi í Árskógarskóla og með hagsmuni barna að leiðarljósi.
„Með þessum breytingum telur sveitarstjórn að verið sé að koma betur til móts við þarfir barnanna. Lögð verður rík áhersla á að leikskóli verði áfram starfræktur í Árskógarskóla en fastráðnu starfsfólki á grunnskólastigi verði boðin tilfærsla á störfum innan fræðslustofnanna Dalvíkurbyggðar,“ segir í tilkynningunni þar sem er einnig tekið fram að gott starf hafi verið unnið í Árskógarskóla, bæði á leikskóla- og grunnskólastigi, undanfarin ár.
Leikskóladeildin Kötlukot í Árskógarskóla verður færð undir stjórn leikskólans á Krílakoti. Einnig munu stjórnendur leikskólans á Krílakoti taka yfir stjórn grunnskólans í samráði við skólastjóra og deildarstjóra yngsta stigs í Dalvíkurskóla frá 1. nóvember til lok grunnskóla í Árskógarskóla. Skólastjóri Dalvíkurskóla mun sjá um fjármál Árskógarskóla til 31. desember 2025.


COMMENTS