Elín Arnardóttir, hjúkrunarfræðingur hjá HSN, varð á dögunum fyrst til að ljúka doktorsnámi í hjúkrunarfræði frá Háskólanum á Akureyri. Hún varði doktorsritgerð sína við hátíðlega athöfn í hátíðarsal háskólans föstudaginn 14. nóvember.
Ritgerðin ber heitið „Tíðni forstigseinkenna sykursýki af tegund 2 og notkun fyrirbyggjandi nálgana í heilsugæslu“. Aðalleiðbeinandi Elínar var dr. Árún K. Sigurðardóttir, prófessor við Hjúkrunarfræðideild Háskólans á Akureyri.
„Þessi viðburður markar stóran og mikilvægan áfanga fyrir hjúkrunarfræði á Íslandi og er tímamót í sögu fræðasviðsins. Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga óskar Elínu og Háskólanum á Akureyri innilega til hamingju með þennan merka áfanga,“ segir á vef Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga.
Guðný Friðriksdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar hjá HSN segir útskriftina vera mikilvægt og sögulegt skref á vef HSN.
„Elín er sú fyrsta til að ljúka doktorsnámi í hjúkrunarfræði frá Háskólanum á Akureyri og jafnframt fyrsti hjúkrunarfræðingurinn með doktorsgráðu í hjúkrunarfræði starfandi hjá HSN. Þessi merki áfangi lýsir metnaði, fagmennsku og elju Elínar og er mikilvægt og sögulegt skref fyrir fagið, fyrir okkur hjá HSN og ekki síst hana sjálfa. Við óskum Elínu innilega til hamingju og þökkum fyrir það dýrmæta framlag sem hún færir starfsemi okkar,“ segir Guðný.


COMMENTS