Hefur styrkt Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis um 3.247.000 krónurHörður Óskarsson ásamt stjórn. Mynd: Þórhallur Jónsson.

Hefur styrkt Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis um 3.247.000 krónur

Hörður Óskarsson selur á hverju ári mottur og slaufur til styrktar Krabbameinsfélagi Akureyrar og nágrennis, KAON. Í mars selur Hörður mottur og í október slaufur og í ár skilaði salan 826.000 krónum fyrir Krabbameinsfélagið. Frá árinu 2018 hefur Hörður styrkt Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis um 3.247.000 krónur. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef KAON.

„Hörður hefur verið reglulegur styrktaraðili við félagið í gegnum árin. En styrkina veitir hann til minningar um bróður sinn Sigurð Viðar Óskarsson, en hann lést úr krabbameini árið 2010. Hörður smíðar fallegt skart úr gamalli mynt sem hann selur undir merkjum Mynthringar og allskonar,“ segir í tilkynningu KAON.

Vert er að geta þess að vörur Harðar eru til sölu hjá Krabbameinsfélagi Akureyrar og nágrennis og í vefverslun Krabbameinsfélagsins. Einnig er hægt að panta þær í gegnum Facebook síðu Harðar.

COMMENTS