Kiwanisklúbbarnir Herðubreið í Mývatnssveit, Kaldbakur á Akureyri, Skjöldur á Siglufirði, Drangey á Sauðárkróki, Askja á Vopnafirði, Skjálfandi á Húsavík og Grímur í Grímsey, hafa tekið höndum saman og gefið fæðingardeild Sjúkrahússins á Akureyri, SAk, þráðlausan hjartsláttarmonitor að gjöf. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef SAk.
Saman mynda þessir Kiwanisklúbbar Óðinssvæði, sem flest ár gefa eitthvað sameiginlegt til styrktar börnum á svæðinu.
„Þráðlaus hjartsláttarmonitor gefur verðandi mæðrum meiri möguleika á að hreyfa sig um í fæðingunni því það eru engar snúrur sem hindra hreyfingu þeirra. Það er auðveldara fyrir þær að breyta um stellingu, en það getur haft jákvæð áhrif á gang fæðingarinnar. Einnig eru þráðlausu nemarnir vatnsheldir og því er hægt að fylgjast náið með hjartslætti barnsins þegar og ef konan óskar eftir því að vera í baði,“ segir Ingibjörg Hanna Jónsdóttir, deildarstjóri fæðingadeildar SAk, á heimasíðu sjúkrahússins.
„Sjúkrahúsið vill þakka klúbbunum innilega fyrir þeirra fallegu gjöf sem kemur til með að nýtast ákaflega vel,“ segir í tilkynningu Sjúkrahússins á Akureyri.


COMMENTS