Nýtt leiðarkerfi landsbyggðarstrætó tekur gildi um áramót  – akstur til og frá Akureyrarflugvelli

Nýtt leiðarkerfi landsbyggðarstrætó tekur gildi um áramót  – akstur til og frá Akureyrarflugvelli

Breytt leiðarkerfi Strætó á landsbyggðinni tekur gildi 1. janúar 2026. Nýtt kerfi leysir af eldra leiðarkerfi sem ekki hefur verið uppfært í takt við breytingar í þjóðfélaginu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni.

Landsbyggðavagnar hefja akstur til og frá Akureyrarflugvelli í tengslum við nýja kerfið. Vegagerðin sá í samstarfi við Isavia um uppbyggingu stoppistöðvar á plani við nýju flugvallarbygginguna. Valdar tímasetningar í áætlun akstursleiða verða tímasettar á þann veg að þær passi við flugferðir sem eru stöðugastar í flugáætlun Icelandair. Munu landsbyggðarvagnar bæði nýtast þeim sem búa utan Akureyrar sem og íbúum á Akureyri.

„Meginmarkmið landsbyggðarstrætós er að tengja saman byggðakjarna og sveitarfélög. Leitast hefur verið við að tengja ferðir landsbyggðarvagna við innanbæjarkerfi almeningssamgagna sveitarfélaga. Breytingarnar hafa verið unnar í samráði við hagaðila og mun samráðið halda áfram eftir að nýja leiðarkerfið hefur tekið gildi á meðan reynsla er að komast á það,“ segir í tilkynningunni.

  • Núverandi leiðakerfi landsbyggðarvagna er 13 ára gamalt og hefur ekki verið uppfært í takt við uppbyggingu þéttbýliskjarna síðustu ára, sem og þær breytingar sem hafa orðið á íbúa- og byggðamynstri.
  • Nýja leiðakerfið sem tekur gildi um áramótin byggir á núverandi kerfi og því um að ræða endurhönnun á eldra leiðakerfinu. Markmiðið með breytingunum er að þróa heildarmynd leiðakerfisins á landsbyggðinni, að þjónusta við vinnu- og skólasóknarsvæða verði sem best, og að þjónusta á milli landshluta sé samræmd. 
  • Hlutverk landsbyggðarvagna er að framfylgja stefnu stjórnvalda í almenningssamgöngum. Meðal atriða í þeirri stefnu er að tengja saman ferðamáta á láði, lofti og legi. Einnig að landsbyggðarvagnar sinni akstri milli byggðarlaga, en almenningssamgöngur innan einstakra sveitarfélaga eru á þeirra forræði. 
  • Ein af áherslunum í endurhönnun leiðakerfisins er að tengja landsbyggðarvagna við innanbæjarkerfi þar sem þau eru til staðar. Það er hluti af því að styrkja tengingar vinnu- og skólasóknarsvæði þvert á sveitarfélög.
  • Allar breytingar sem gerðar eru á leiðakerfinu eru byggðar á og gerðar í samráði við hagaðila. Til að fylgja breytingunum eftir, og verkefninu í heild, er fyrirhugað að Vegagerðin haldi frekari samráðsfundi með hagaðilum þegar líður á nýjan samning til að ræða áhrif breytinganna. 

Allar upplýsingar um breytt leiðakerfi er að finna á heimasíðu Strætó bs., www.straeto.is

COMMENTS