Krónan hefur afhent Velferðarsjóði Eyjafjarðarsvæðis jólastyrk sem safnað var fyrir í söfnun Krónunnar á aðventunni og mun hann nýtast 32 fjölskyldum á Norðurlandi. Með söfnuninni bauðst viðskiptavinum að styrkja hjálparsamtök sem sjá um matarúthlutanir í sínu nærsamfélagi í aðdraganda jóla og jafnaði Krónan þá upphæð á móti. Viðskiptavinir Krónunnar á Akureyri, ásamt Krónunni söfnuðu alls 640 þúsund krónum. Samtals söfnuðust 10 milljónir króna í jólastyrkjasöfnun matvöruverslunarinnar sem munu nýtast 500 fjölskyldum um land allt.
Jólastyrkurinn veittur í sjötta sinn
„Það er alltaf ánægjuleg stund að afhenda hjálparsamtökunum þá upphæð sem safnast í jólasöfnun okkar og viðskiptavina. Jólastyrkurinn er okkur afar kær og við erum þakklát viðskiptavinum okkar á Akureyri fyrir samhuginn og viljann til að láta gott af sér leiða. Margt smátt gerir eitt stórt og með þessu getum við aðstoðað 32 fjölskyldur á Norðurlandi við matarinnkaupin um hátíðarnar. Það vonandi léttir aðeins undir og dregur að einhverju leyti úr álagi sem oft getur fylgt þessum árstíma,“ segir Guðrún Aðalsteinsdóttir, framkvæmdastjóri Krónunnar.
Um jólasöfnunina
Með söfnuninni bauðst viðskiptavinum að styrkja um 500 krónur eða meira í lokaskrefi greiðslu í verslunum Krónunnar um allt land. Krónan jafnaði síðan framlagið og rennur heildarstyrkurinn til þeirra sem þurfa á mataraðstoð að halda fyrir jólin. Styrkirnir eru veittir í formi gjafakorta svo styrkþegar geti valið sína eigin matarkörfu og keypt það sem hentar hverri fjölskyldu.


COMMENTS