Tryggvi Snær er körfuknattleikskarl ársins

Tryggvi Snær er körfuknattleikskarl ársins

Körfuknattleiksmaðurinn Tryggvi Snær Hlinason hefur verið valinn körfuknattleiksmaður ársins 2025 af Körfuknattleikssambandi Íslands, KKÍ. Þetta er annað árið í röð sem Tryggvi hlýtur nafnbótina

Körfuknattleikskona og karl ársins eru valin í kosningu af stjórn og starfsmönnum KKÍ, afreksnefnd KKÍ og þjálfurum karla-og kvennalandsliðanna. Sara Rún Hinriksdóttir sem spilar fyrir Keflavík var valin körfuknattleikskona ársins.

Tryggvi hóf ferilinn með Þór á Akureyri en spilar í dag fyrir Surne Bilbao Basket á Spáni. Í umfjöllun KKÍ segir eftirfarandi um árið 2025 hjá Tryggva:

Tryggvi Snær  átti stórkostlegt ár með félagsliði sínu Bilbao Basket og íslenska landsliðinu. Bilbao sigraði FIBA Europe Cup með glæsilegum sigri á PAOK frá Grikklandi í úrslitaeinvígi. Tryggvi átti sinn besta leik í undanúrslitum keppninnar, þegar hann var framlagshæstur sinna manna í sigri á Tofas frá Tyrklandi. Tryggvi var frábær fyrir íslenska landsliðið á Eurobasket í Póllandi. Hann leiddi íslenska liðið í stigaskorun og fráköstum, og var sjötti framlagshæsti leikmaður mótsins, ásamt því að enda í öðru sæti í 2 stiga skotnýtingu – á milli þeirra Giannis Antetokounpo og Nikola Jokic. 

Nánar á vef KKÍ.

COMMENTS