Sjúkratryggingar Íslands og Rauði krossinn á Íslandi hafa gert með sér samkomulag um framlengdan og breyttan samning um skaðaminnkandi þjónustu Frú Ragnheiðar fyrir fólk með vímuefnavanda. Fjármagn til starfseminnar hækkar úr tæpum 23 milljónum króna í 50 milljónir króna á ársgrundvelli. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Rauða krossins á Íslandi.
Þjónusta Frú Ragnheiðar er veitt í sérútbúnum bílum sem ekið er á höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum og á Akureyri. Boðið er upp á nálaskiptaþjónustu, heilbrigðisþjónustu og sálrænan stuðning og ráðgjöf. Í bílunum geta skjólstæðingar einnig fengið hlý föt og næringu.
Frú Ragnheiður hefur það að markmiði að koma í veg fyrir ótímabær dauðsföll og óafturkræfan skaða sem og að auka lífsgæði og bæta heilsufar einstaklinga sem nota vímuefni með því að veita skaðaminnkandi lágþröskuldaþjónustu í nærumhverfi einstaklinga. Samfélagslegur ávinningur er margvíslegur af verkefnum Frú Ragnheiðar, s.s. lækkun á tíðni sýkinga og útbreiðslu smitsjúkdóma á borð við HIV og lifrarbólgu C, færri dauðsföll af völdum ofskömmtunar, ábyrgari notkun vímuefna og minna af notuðum sprautubúnaði í almenningsrýmum.
„Þessi stóraukna styrkveiting Sjúkratrygginga Íslands til Frú Ragnheiðar er staðfesting á því að verkefnið er mikilvæg heilbrigðisþjónusta við jaðarsettan og viðkvæman hóp samfélagsins og að Rauði krossinn sinnir þar veigamiklu hlutverki,“ segir Ingibjörg Halldórsdóttir, deildarstjóri Eyjafjarðardeildar Rauða krossins.
Hún segir verkefnið hafa verið í mikilli rekstaróvissu lengi. „En nú horfum við fram á bjartari tíma hvað það varðar. Við erum þakklát fyrir traustið sem okkur er sýnt og munum halda einbeitt áfram að þjónusta af hlýju og virðingu, öll þau sem leita til okkar í Frú Ragnheiði.“


COMMENTS