Nýr samstarfssamningur SAk og RHALaufey og Arnar Þór/Mynd: SAk.is

Nýr samstarfssamningur SAk og RHA

Samstarfssamningur Sjúkrahússins á Akureyri (SAk) og Rannsóknamiðstöðvar Háskólans á Akureyri (RHA) hefur verið undirritaður. Með samningnum staðfesta SAk og RHA sameiginlegan vilja til að efla samstarf á sviði rannsókna og fræðastarfs. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef SAk í dag.

Þar segir að markmiðið sé að styðja við starfsfólk SAk í vísindavinnu og tryggja aðgang að faglegri ráðgjöf og sérfræðiþekkingu RHA.

„Með þessu samstarfi er stigið mikilvægt skref í átt að öflugri rannsóknarinnviðum. Við viljum að starfsfólk SAk sem hefur áhuga á því að framkvæma vísindarannsókn og vinna að nýsköpun í heilbrigðiskerfinu fái góðan stuðning til að útfæra hugmyndir sínar,“ segir Laufey Hrólfsdóttir, deildarstjóri mennta- og vísindadeildar SAk.

„Við hjá RHA hlökkum mikið til samstarfsins. RHA hefur stundað rannsóknir og stutt við rannsóknir annarra í yfir 30 ár og við sjáum mikil tækifæri í því að tengjast enn betur því ört vaxandi vísindastarfi sem fer fram innan SAk,“ segir Arnar Þór Jóhannesson, forstöðumaður RHA.

COMMENTS