Akureyríska hljómsveitin Sólför gaf í dag út sitt fyrsta lag. Lagið heitir Clockwork Carousel og er nostalgískur rokksmellur. Meðlimir sveitarinnar lýsa tónlist sinni sem „baksýnisspegils-rokki“ sem sækir innblástur til klassískt rokks en er drifið áfram með núrímalegri framsetningu.
Hljómsveitina Sólför skipa:
Ivan Mendez – Söngur
Sigfús Jónsson – Bassi
Bjarni Einarsson – Gítar
Kęstutis Balčiūnas – Trommur
„Þetta er tónlist sem mig hefur lengi langað til að gera, bara síðan ég var 13 ára rokkari að spila á gítar inni í herberginu mínu. Síðastliðin ár hef ég verið að kanna aðrar tónlistarstefnur, ég hef gaman af mjög mörgu, en þyngdarafl rokksins fór að toga mig til sín aftur. Svo þegar ég fann minn bandamann í Fúsa þá fóru hjólin að snúast,” segir Ivan um upphaf hljómsveitarinnar.
Sveitin stefnir á að gefa út nýtt lag á sex vikna fresti komandi mánuði og svo sína fyrstu breiðskífu í sumar.

„Við erum búnir að vera að pródúsera þessa tónlist saman í rúmt ár núna. Mestmegnis er hún hljóðrituð í hljóðveri okkar, Hljómbræður Stúdíó, en svo höfum við fengið að taka upp trommur með Kęstutis í hljóðveri Tónlistarskólans í Hofi. Þannig það má segja að músíkin sé algjörlega heimatilbúin,” segir Sigfús um framleiðsluferli tónlistarinnar.
Aðspurður um innihald textans segir Ivan að myndmálið sé mjög litað af upplifun á stórborgarlífi. „Þetta fjallar um þessa vélrænu rútínu, „hringekju“ hversdagsleikans, sem getur oft verið dimm og drungaleg þegar maður er ekki sáttur við ytri aðstæður. En þetta er líka áminning um að líðandi stund er það eina sem við eigum í raun, og að dimmir tímar taka alltaf enda.“
Lagið Clockwork Carousel er nú streymanlegt á öllum helstu veitum. Hlustið á lagið hér:
https://shorturl.at/3ASQL
Sólför á Instagram:
https://www.instagram.com/solforband
Facebook:
https://www.facebook.com/profile.php?id=61584426074594&ref=_xav_ig_profile_page_web



COMMENTS